Þrír sunnudagar og einn mánudagur í mai
Þrír sunnudagar og einn mánudagur í mai
- hordursjalfur's blog
- Login or register to post comments
- Lesa meira
Umræðufundir um stjórnlagaþing
Skellti mér í það á mánudagsmorgni að koma á nokkrum opnum umræðufundum um stjórnlagaþing núna í mai mánuði. Ég hafði rætt þetta við Sigurð Hr. Sigurðsson og við urðum ásáttir um að hann aðstoðaði mig við að útvega ræðufólk. Ég gekk frá samkomulagi við eigendur Hornsins sem tóku hugmyndinni mjög vel.
Niðurstaðan er að fyrsti fundurinn verður haldinn á Horninu n.k. sunnudag 2 mai kl. 15.00 og mun Páll Skúlason, prófessor í heimspeki ræða „um nauðsyn þess að rækta ríkið“.
- hordursjalfur's blog
- Login or register to post comments
Hrun
Hrun heillar þjóðar er merkileg upplifun af því að maður er hluti þjóðarinnar. Þetta er að gerast í mínu lífi og allra íslendinga hvort sem okkur líkar betur eða verr. Þetta er ekki neitt sem ég bað um eða vildi en ég kemst ekki framhjá á einn eða annan hátt, frekar en aðrir. Hér þýða engin Pollýönnutök, því illu heilli, þetta bitnar á lífi mínu frá því að ég vakna þar til að ég sofna, alla daga og hefur gert síðan í septemberlok 2008. Og nú er komið undir lok apríl 2010.
- hordursjalfur's blog
- Login or register to post comments
- Lesa meira
Mannréttindi
Réttindi manna eru oft það fyrsta sem er látið fjúka þegar almenn reiði grípur um sig. Þá rísa upp einstaklingar eða hópar sem sjá ekkert athugunarvert við að ráðast að heimilum fólks sem það er reitt.
- hordursjalfur's blog
- Login or register to post comments
- Lesa meira
Hversvegna segja þau ekki af sér?
Björgvin G. Sigurðsson, Illugi Gunnarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hafa ákveðið að taka sér tímabundið frí frá Alþingisstörfum.
- hordursjalfur's blog
- Login or register to post comments
- Lesa meira
Ekki við heimili fólks
Hér glymur síminn og í honum er rödd manns sem vill að ég komi og mótmæli fyrir utan heimil Þorgerðar Katrínar. Svo sannarleg styð ég það að Þorgerður Katrín og fleiri ráðamenn segi umsvifalaust af sér og axli ábyrgð. Við, íslenska þjóðin, höfum verið blekkt illilega og svikin og framin á okkur mannréttindabrot. En það gefur okkur ekki rétt á að brjóta á öðru fólki.
- hordursjalfur's blog
- Login or register to post comments
- Lesa meira
Hvað hefur komið fyrir þessa þjóð?
Vér, gjósendur þessa lands, látum fjöllin um að sýna reiðina. Við nennum því ekki sjálf. Jafnvel þó búið sé að ræna okkur aleigunni. Okkur er skítsama þó nokkrar sálir verði dæmdar fyrir það að sýna mótþróa á Alþingi. Þeirra mál, segjum við og ypptum ðxlum. Hefur góðæri undanfarinna ára sundrað þessari þjóð svo gjörsamlega að öll samheldni er horfin og mennskan einskis virði, sjálfsvirðingin engin?
- hordursjalfur's blog
- Login or register to post comments
- Lesa meira
Smá pæling.
Skyldu nær 40% íslenskra kjósand ætla að halda áfram að kjósa Hrunflokkana eftir útkomu Rannsóknarskýrslunar?
Mér það augljóst mál að við, fólkið í landinu, verðum að grípa til aðgerða og koma á Stjórnlagaþingi án aðkomu stjórnmálaflokkana. Og það er ekki til neins að byrja á því núna í vor. Undirbúum okkur vel í sumar og hefjumst handa þegar haustar.
Hugsunarhátturinn"Þetta reddast" verður að víkja.
- hordursjalfur's blog
- Login or register to post comments
Þetta flýgur um á netinu
Á morgun, 10.04.´10 mun skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis verða birt og í því tilefni flýgur þetta um á netinu.
Athugið,vegna skýrslu rannsóknarnefndar
Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis er upphaf. Ekki endir.
Margir vilja eyðileggja trúverðugleika skýrslunnar. Meintir andstæðingar munu verða samstiga í því og beita öllum brögðum.
• Stjórnvöldum er í lófa lagið að ná til allra helstu gerenda í efnahagshruninu, annarra en stjórnmálamanna, með því að höfða gegn þeim skaðabótamál.
- hordursjalfur's blog
- Login or register to post comments
- Lesa meira
Æft af kappi...
Þegar ég kom til Íslands 10.janúar frá Ítalíu tók ég mig til og fór í gegnum laga og textaskissur undanfarinna mánaða. Það sem kom mér á óvart var hvesu margar þær voru. Sérstaklega skissurnar sem tengdar voru mótmælunum á Austurvelli. Ég ákvað að fullvinna þær og hef lengið yfir þeim undanfarna mánuði og nú eru þær brátt að verða tilbúnar til hljóðritunar. Ég ætla að flytja ellefu nýja söngva úr þessu safni á tónleikunum mínum í Iðnó núna á fimmtudagskvöld. Mér finnst annar tónn í þeim en venjulega hjá mér. Mér finnast þessir textar afdráttarlausari.
- hordursjalfur's blog
- Login or register to post comments
- Lesa meira


Hörður Torfa hefur haft mannréttindi sem kjarna listar sinnar í 40 ár.

